Fyrir liggur að aðalfundur FEBAN verður haldinn föstudaginn 20. mars n.k. Samkvæmt lögum félagsins er á aðalfundi kosin kjörnefnd og hlutverk hennar eftirfarandi:
Að auglýsa eftir framboðum til trúnaðarstarfa fyrir félagið, stjórn, varastjórn, kjörnefndar og skoðunarmanna.
Nefndin skal tryggja að á aðalfundi verði að lágmarki tillaga um fulltrúa í öll trúnað- arstörf félagsins.
Hér með er óskað eftir framboðum til eftirfarandi trúnaðarstarfa:
- Tveir fulltrúar í stjórn félagsins til tveggja ára.
- Fimm fulltrúar í varastjórn til eins árs.
- Þrír fulltrúar í kjörstjórn til eins árs.
- Tveir skoðunarmenn og tveir til vara til eins árs.
Samkvæmt umboði síðasta aðalfundar er eitt ár eftir af kjörtímabili formanns og tveggja fulltrúa í stjórn.
Óskað er eftir að þeir sem gefa kost á sér í þau trúnaðarstörf sem kjörið verður til á aðalfundi, sendi einhverjum neðangreindum fulltrúa í kjörstjórn tilkynningu þar um eigi síðar en föstudaginn 13. mars n.k.
Akranesi 10. febrúar 2026
Gísli Gíslason (ggaknet@gmail.com)
Elín Kjartansdóttir (elinhk54@gmail.com)
Andrés Ólafsson (andres@aknet.is)